|
Matur er mannsins megin...
|
22.09.2008 14:37:47 / stegb
Nu er komid fram i lok september og margt og mikid hefur att ser stad sidan i mars sl. Alt of langan tima myndi taka ad telja allt saman upp i smaatridum, enda yrdi thad sennilega heldur leidinleg lesning… En i fljotu bragdi myndi atburdarrasin (tho ekki endilega i rettri rød) vera eftirfarandi… … Sidan i mars hef eg ferdast thonokkud, bædi innanlands (i Noregi) og utanlands. Hef farid tvær vinnutengdar ferdir til danmerkur og tvær skemmtiferdir til Pollands. Ekki ma svo gleyma 4 vikna sumarleyfisferd til Islandsins kæra Thar dvaldist eg ad mestu i Skagafirdinum, en flakkadi svolitid a milli landshorna og syslna a Nordurlandinu… Hitti fullt af skemmtilegu folki a Klakanum kæra, for i tvø afmæli (30 og 75 ara), fullt af skemmtilegum dagsferdum um Skagafjørd og nagrenni og brudkaup hja æskuvinkonu minni  … Innanlands for eg m.a. i tvær fjallgøngur (sem voru reyndar bara dagsferdir), dagsferd til Fredrikstad, tonleika i Kongsberg, og rafting-ferd til Sjoa nuna i haust thar sem gist var a gømlum norskum bondabæ i tvær nætur og raftad af lifi og sal tvo daga i rød…ædislegt En mikid tok su ferd a skrokkinn…hef sjaldan verid jafn stif og stird… … Svo er eg flutt enn eina ferdina… By nu a fjorda stadnum fra thvi eg flutti til Noregs fyrir 3 arum. En liklega hef eg aldrei verid jafnvel stadsett og nu… by i husi sem stadsett er vid hlidina a vinnunni thannig ad thad tekur halfa minutu ad rølta yfir  Thessi lysing verdur ad duga i bili, en reyni nu kannski ad vera duglegri ad skrifa her inn a næstunni. En tha væri lika gaman ad gestir kvittudu fyrir sig svo madur geti fylgst med hverjir reka her inn nefid…  Kved ad sinni, thar sem tilraunastørfin kalla…
»
14.03.2008 14:53:20 / stegb
»
05.03.2008 11:57:57 / stegb
»
27.02.2008 11:24:46 / stegb
»
04.11.2007 12:20:36 / stegb
Steig fæti á þýska grund í fyrsta skipti á ævinni í gærmorgun. Lenti á Munchen flugvelli, en þaðan lá leiðin til bæjarins sem ætlunin er að dvelja í næstu vikuna. Sá nefnist Freising og er rétt utan við Munchen. Ákvað að vera flott á því og tók leigubíl á hótelið. Leist reyndar ekki á blikuna þegar leigubílstjórinn þurfti að athuga vegakortið nokkrum sinnum á leiðinni. En allt er gott sem endar vel og að lokum fann hann hótelið mitt... Hélt að leigubílstjórar rötuðu allt og þessi leit nú út fyrir að vera búinn að keyra í nokkur ár... Hótelið er staðsett í göngufæri við miðbæinn og innan við 2 km frá staðnum þar sem námskeiðið fer fram. En tilgangur fararinnar er að fara á námskeið í ákveðinni tækni sem ég kem til með að nota mikið (til að byrja með a.m.k.) í verkefninu mínu. Námskeiðið er frá mánudegi til fimmtudags, en ég flýg heim (til Noregs alltsvo) nk. laugardag. Spurning um að nota síðasta daginn til að skreppa til Munchen... Verst að bjórhátíðin er yfirstaðin...  Rölti aðeins um miðbæinn í gær, kíkti í búðir og svona... Ætla að rölta aðeins meira um í dag og jafnvel reyna að finna staðinn þar sem námskeiðið er haldið... Finnst alltaf traustvekjandi að vita nákvæmlega, eða hér um bil, hvert maður er að fara...
»
25.10.2007 21:01:00 / stegb
... langt síðan að ég skrifaði hér seinast og margt búið að gerast síðan þá. Hef ekki orku í að skrifa einhverja langloku í þetta sinnið þannig að hér koma nokkrar stuttar staðreyndir í punktaformi... Var á Íslandi í 11 daga í sumar, sem var allt of fljótt að líða...náði ekki að hitta eða gera helminginn af því sem ég ætlaði mér. Engu að síður var yndislegt að komast aðeins heim  Varði mastersverkefnið 3 dögum eftir að ég kom út aftur og gekk það bara mjög vel. Eyddi að því loknu nokkrum dögum í Kaupmannahöfn í góðra vina hópi. Afskaplega vel heppnuð og skemmtileg ferð. Fórum í skoðunar- og verslunarferðir, út að borða og fleiri skemmtilegheit. Flutti á nýjan stað 1.september og bý nú með 3 Norðmönnum; bekkjarbróður mínum og kærustunni hans og bekkjarsystur minni. Heldur lengra í vinnuna en frá gamla staðnum eða um 40 mín. ganga hvora leið. En ég fékk svo flott hjól í útskriftargjöf frá gömlu hjónunum og stóru systur og co. að það er ekkert mál... spurning hvort það verði enn ekkert mál þegar snjórinn lætur sjá sig...  Byrjaði í doktorsnámi í lífefnafræði 1. september sl. hjá fyrirtæki sem er í sama bæ og háskólinn sem ég tók masterinn við, þ.e. Ási (rétt sunnan við Osló  . Er ráðin til 4 ára og kem til með að fá doktorsgráðuna frá sama háskóla og ég tók masterinn við...ef allt gengur samkvæmt áætlun...  Líst mjög vel á þetta allt saman, bæði verkefnið sem ég mun kljást við sem og samstarfsmennina og vinnuumhverfið allt... Verð nú samt líklega ekki alvöru Norðmaður fyrr en ég læri almennilega á skíði og get étið brauð með norskri lifrarkæfu eða vöfflur með brúnosti... Hélt matarboð fyrir nokkra Íslendinga hér á svæðinu sl. föstudag sem tókst bara nokkuð vel og var yndislegt að fá þau í heimsókn... gæðastund þar á ferð... Tónleikar í Osló spektrum núna fyrr í vikunni sem voru alveg ágætir... Og alveg heill hellingur af skemmtilegum stundum í góðra vina hópi... gott að eiga góða að... 
Og fleira var það ekki að sinni... spurning hversu langt líður þar til ný færsla ratar hingað inn, en tíminn flýgur jú áfram á ógnarhraða...
»
06.08.2007 20:45:41 / stegb
|
Ég er á leiðinni á Klakann eftir
1 og 1/2 sólarhring Stoppa reyndar stutt í þetta skiptið, eða
í rétt rúma viku. Annars er búið að vera nóg að gera í vinnu og
lærdómi í sumar, en það fer að sjá fyrir endann á hvorutveggja...
Inn á milli er ég búin að flakka pínu um Norge, reyndar í
nágrenninu bara, og skemmta mér með vinum þrátt fyrir hledur
óhagstætt sumarveður flesta daga...
Frekari fréttir síðar og sjáumst
á Íslandi...  |
|
»
24.06.2007 13:19:17 / stegb
... búin að skila blessaðri masters-ritgerðinni
Það átti sér stað á föstudaginn fyrir rúmri viku síðan
og var fagnað með strandferð í góðra vina hóp. Reyndar er
vörnin sjálf eftir, en hún mun eiga sér stað í kringum
20.ágúst. Samtímis mun fara fram munnlegt próf í 5
eininga les-áfanga. Þannig að það er ekkert mikið um
sumarfrí... Og svo byrjaði ég í sumarvinnunni minni á
mánudaginn fyrir viku síðan, en samningurinn er til 17.ágúst.
Nóg að gera...
Hvað gerist eftir vörnina og næstu misseri mun
hins vegar koma í ljós síðar... ef allt fer vel (sem ég vona
innilega) eru spennandi tímar framundan 
Fyrir utan strandferðir, skriftir og vinnu er nóg
annað búið að gerast. 17.júní skemmtun í Osló með "út að
borða"-stemmingu í kjölfarið, tónleikar á Ráðhústorginu í
Osló, markaður í heimabæ mínum og margt fleira...
Stefni svo á að fara í "alvöru" sumarfrí í nokkra
daga um eða eftir 20.ágúst nk. Hlakka svo til...

»
08.05.2007 17:24:36 / stegb
... kominn tími til að uppfæra pínu kannski. Annars er voða
lítið í fréttum. Skriftir eru enn í fullum gangi og er ekki enn
farið að sjá fyrir endann á þeim... Kemur allt saman með kalda
vatninu... Lifi a.m.k. í voninni um það. Hef aðeins verið að
tilraunast inn á milli líka, en því fer vonandi að ljúka hvað úr
hverju... svona meðan ég geri engin mistök og eyðilegg allt
saman!!! Er t.a.m. að framkvæma eina tilraun þessa dagana, sem ég
krossa fingur fyrir að heppnist nú loksins...
Næstkomandi laugardag er voða fín veisla fyrir þá nemendur sem
útskrifast með mastersgráðu þetta árið... hef heyrt því fleygt að
von sé á um eða yfir 700 manns í matinn!!! Hefð er fyrir því
að bjóða foreldrum með, en þar sem þau gömlu komu ekki út bauð ég
stóra bróður og frú í staðinn. Finnst samt eiginlega pínu asnalegt
að fagna áður en maður er í rauninni búinn. Veislan er semsagt
12.maí, en skilafrestur fyrir ritgerðir er ekki fyrr en 15.maí. Og
það eru alltaf einhverjir sem fá framlengdan skilafrest, þar á
meðal trassinn ég... Og þar að auki er masters-prófið sjálft
(þar sem maður ver ritgerðina) yfirleitt ekki fyrr en nokkrum vikum
eftir skil. En, svona er það víst bara... Þetta verður vonandi bara
gaman 
En nú er klukkan langt gengin í átta hérlendis, þannig að það er
líklega kominn tími til að hafa sig heim á leið...
Kveð því í bili úr vorblíðunni í Noregi (sem er reyndar ekki
jafnmikil þessa vikuna og þá síðustu)...
»
24.04.2007 18:58:56 / stegb
Voða lítið að frétta... Reyni að hugsa, lesa og skrifa
sem mest þessa dagana. Sem gengur misvel. Andleysi inn á milli eins
og gengur og gerist. Hef fengið skilafrest
ritgerðarinnar framlengdan um mánuð, en ætla samt sem áður að
reyna að skila sem fyrst... illu er víst best aflokið... 
Reyndar gert eitt og annað í viðbót við skriftir síðan síðast.
Fór á opnun arkitektarsýningar (á vegum nemenda í skólanum mínum og
arkitektarskóla Osló) í Osló fyrir tæpum tveimur vikum,
afmælisboð til stóra bróður sl. sunnudag og osta- og vínkvöld
sl. miðvikudag (og tónleikar með staðar-bandi í kjölfarið) svo
eitthvað sé nefnt...
Búin að vera sól og blíða undanfarnar tvær vikur eða svo. Alla
vega flesta dagana. Rigning reyndar í dag og fyrradag, en það er
víst gott fyrir blessaðan gróðurinn...
Hins vegar bíða "Aðþrengdar eiginkonur" mín handan við hornið
núna... allt að gerast þar að venju... 
»
10.04.2007 21:13:26 / stegb
»
02.04.2007 10:12:45 / stegb
...er
ALEIN eftir á heimilinu, þar sem allir aðrir íbúarnir eru
farnir í páskafrí. Eða eftir því sem ég best veit... Tæpir
200 fermetrar (ef mér reiknast rétt til þ.e.a.s.); 2
sjónvörp, 3 baðherbergi og 8 svefnherbergi. Þannig að það er
nóg pláss!!! Pínu einmannalegt, en voða notalegt engu að
síður... 
Skrapp í
bíó á laugardagskveldið með norskri vinkonu minni og meðleigjanda
hennar. Sáum mynd er heitir "Notes on a Scandal"... voða dramatísk.
Samband tveggja kennslukvenna; önnur einmanna sál og með
einhverskonar geðveilu og hin í framhjáhaldi með 15 ára gömlum
nemanda sínum (sjálf langt komin í fertugt, ef ekki eldri).
Ágætis mynd
sem fær mann til að hugsa margt og mikið eftir á... Áður en
haldið var í kvikmyndasalinn áðum við í almenningsgarði í
grenndinni og héldum "pik-nik". Þær stöllur höfðu verið heldur
seinar fyrir og því ekki náð að ljúka við kvöldmatinn fyrir
ferðina... þannig að þær tóku hann bara með... Eftir að
myndinni lauk kíktum við á næsta bar meðan við biðum eftir lestinni
heim. Sötruðum bjór í rólegheitum og fylgdumst með fólkinu...

Í gær var
það svo Íslendingakaffi, klipping og hallarseta sem var á
dagskránni. En húsið þar sem nemendur
innan minnar deildar í skólanum hafa lespláss kallast "höllin".
Einir 30-40 nemendur sem hafa þar aðstöðu á 2 hæðum. Tiltölulega
nýuppgert, rúmgott og fínt í flesta staði.
Jæja...
best að reyna að halda áfram að skrifa eitthvað af viti... gerist
víst ekki af sjálfu sér... 
»
22.03.2007 22:30:47 / stegb
Allt gott að frétta héðan líkt og flesta aðra daga... 
Fór í búningateiti sl. laugardagskvöld,
en Norðmenn virðast vera mikið fyrir að klæða sig
upp þegar þeir fara út að skemmta sér. Í þetta sinnið átti fólk að
klæða sig upp í eitthvað sem byrjaði á T... Ég fór sem
"turnus-lege", sem útleggst sem læknanemi (eða -kandídat) á ástkæra
ylhýra. Keypti m.a.s. læknadóts-pakka með hlustunarpípu, hitamæli
og fleiri nauðsynlegum hlutum fyrir "alvöru" lækna. Gaman að sjá
búningana hjá öðrum, en fólk hafði lagt mismikið á sig við gerð
þeirra. Það sem m.a. bar fyrir augu (byrjar að sjálfsögðu allt á T
ef er snúið yfir á norsku) var; te-partý, tepoki, klæðskiptingur,
Þjóðverji, þjálfari, munkur, tvíburi, múmía, umferðarljós, þjófur
o.fl. o.fl. Gaman að því Teitið var haldið í heimahúsi, en
það var m.a.s. "live" hljómsveit sem tróð upp. Nokkuð góðir bara. Á
staðnum var svo full steypuhrærivél af bollu fyrir gesti og
gangandi... lagði nú reyndar ekkert mikið í hana, þar sem hún var
fullsterk fyrir minn smekk... 
Á sunnudeginum var ég síðan boðin í afmæli, þar sem voru
ljúffengar veitingar í boði... Og gestum boðið að spreyta sig á
Sing-star Hef aldrei komist í tæri við það áður, en mikið
vildi ég að það væri til íslenskur diskur fyrir þennan leik. Væri
nú ekki leiðinlegt að taka "Fram í heiðanna ró" eða "Dagný"...
kannski ekki víst að allir séu sammála um þessi lög þó Veit nú
samt að ein vinkona mín mundi taka undir "Dagný" af fullum krafti
með mér... ekki satt???
Glataði nærri debetkortinu mínu um daginn þegar ég henti því í
ruslið... Að sjálfsögðu ekki með vilja gert Að auki kastaði ég
seðlum í ruslið líka!!! Uppgötvaði það þó blessunarlega fljótt og
gat bjargað öllu saman... svona eru nú námsmenn ríkir... 
Kveðjur í bili úr sólinni og blíðunni sem er hér þessa
dagana... alla vega hlýtt þegar sólin lætur sjá sig... 
»
15.03.2007 21:35:52 / stegb
Nóg að gera hérlendis, sem er bara hið besta mál. Skemmst frá
því að segja að varð ekkert af ferðinni til Osló sl. helgi. Sátum
bara nokkrar saman í heimahúsi í staðinn. Vorum m.a.s. það
"heimakærar" að búið var að loka stúdentabarnum þegar við loks
komum þangað... 
Fór til stóra bróður og fjölskyldu sl. laugardag og var þar
þangað til í gær. Notalegt að venju Afmælisveisla var haldin
fyrir litlu eins árs prinsessuna á sunnudeginum, en það er með
ólíkindum hvað tíminn flýgur. Finnst svo stutt síðan að ég sá litla
krílið í fyrsta skipti á sjúkrahúsinu... Var ljómandi veður alla
dagana sem ég var hjá þeim og greinilegt er að vorið er komið...
sólskin, milt og gott veður 
Fór á tónleika í gær á Samfunnet með norskri hljómsveit sem
heitir DeLillos. Ágætis tónleikar, þó ég hafi vissulega farið á þá
betri. Skrapp í smá teiti fyrir það, þar sem um 80% gestanna voru
karlkyns. Þekkti bara 2 af þeim sem voru viðstaddir, en annað
var vinkonan sem bauð mér... ágætt engu að síður...
Hóf svo setu mína í Höllinni (lessalur
líftækni-stúdenta) formlega í dag, en mun að öllum líkindum
eyða þónokkrum tíma þar á næstunni...
Og síðast, en ekki síst, skrapp ég til Svíþjóðar í dag með
3 stúlkukindum, íslenskum og norskum Röltum um
búðirnar, skoðuðum og náðum að sjálfsögðu að eyða nokkrum
krónum hér og þar. Kom m.a. inn í stærstu sælgætisbúð sem ég hef á
ævinni stigið fæti inn í... Nammilandið í Smáralindinni er bara
prump í samanburði við hana... Finnst samt svolítið fyndið að
til að nálgast mun ódýrari matvöru en hér þurfi einungis að keyra í
tæpa klukkustund... og enn styttra fyrir aðra!!! Og
verslunarmiðstöðin sem við fórum í núna í dag er m.a.s. í eigu
Norðmanna!!!
»
09.03.2007 18:08:23 / stegb
Lítur allt út fyrir að aðeins séu nokkrir dagar eftir á
tilraunastofunni, ekki nema svona 4-5... þannig að skriftir geta
hafist á fullu hvað úr hverju Kannski á morgun bara, eða
hinn, eða hinn... Kemur í ljós 
Stefnan var sett á örlítið útstáelsi í höfuðborginni í kveld, en
sú áætlun er ekki alveg í fullu gildi enn. Í staðinn verður kannski
bara skroppið til næsta bæjarfélags... Kemur allt saman í ljós
þegar líður á kveldið vona ég...
Mig vantar hugmyndir fyrir grímubúning. Skilyrði er að klæða sig
upp í eitthvað sem byrjar á T... á norsku... Hvað dettur ykkur í
hug??? Endilega komið með smá þankahríð (e. brainstorming) í
athugasemdirnar... 
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|